Gary Megson, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Bolton sem Grétar Rafn Steinsson leikur með, viðurkennir að liðið er í vandræðum en allir verði að standa saman ef bjarga á liðinu úr þeim ólgu sjó sem það er komið í. Bolton tapaði í gærkvöldi fyrir Everton þegar Belginn Marouane Fellaini skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.
„Við höfum spilað tíu leiki og fengið aðeins átta stig, við erum augljóslega í vandræðum,“ sagði Megson eftir leikinn í gærkvöldi en Bolton er í næstsíðasta sæti úrvalsdeildarinnar. „Við verðum að fara vinna leiki. Það er alltaf erfitt að vinna leiki þegar maður skorar ekki og nú höfum við ekki skorað í sex af tíu leikjum okkar í ár.“
„Þegar við höfum fengið tækifæri til þess að skora og vinna leiki höfum við ekki nýtt þau. Þannig spilamennska kemur manni alltaf í vandræði. Við höfum talað um þetta saman í búningsklefanum og það er mikilvægt að allir standi saman. Það ætla allir að gera,“ sagði Megson.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana