Ísland er komið með tvö stig í sínum riðli í undankeppni Evrópumótsins eftir auðveldan nítján marka sigur á Belgíu, 40-21, í Laugardalshöllinni í kvöld. Ísland leiddi með tíu mörkum í hálfleik, 19-10. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur íslenska liðsins með 12 mörk en hann skoraði landsliðsmark númer 1000 í leiknum.
Aron Pálmarsson lék um hálftíma í sínum fyrsta landsleik. Hann stóð sig með prýði og skoraði tvö mörk.
Markverðirnir skiptu hálfleikjunum á milli sín. Hreiðar varði 10 skot í fyrri hálfleik en Björgvin Páll 12 í þeim síðari.
Markvörður Belga var þeirra besti maður en hann varði 12 skot. Markahæstur Belganna var Tim Houbrecht með fimm mörk.
Mörk Íslands:
Guðjón Valur Sigurðsson 12/4
Róbert Gunnarsson 5
Þórir Ólafsson 5
Ásgeir Örn Hallgrímsson 4
Vignir Svavarsson 3
Einar Hólmgeirsson 3
Logi Geirsson 3
Aron Pálmarsson 2
Ragnar Óskarsson 1/1
Sverre Jakobson 1
Ingimundur Ingimundarson 1
Varin skot:
Hreiðar Levy Guðmundsson 10/1
Björgvin Páll Gústavsson 12





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 


20 flott mörk frá EM í handbolta
Danir Evrópumeistarar í handbolta
Króatar hirtu bronsið á EM
Guðjón Valur í úrvalsliði EM í Serbíu
Ísland fékk draumadrátt í umspili fyrir HM 2013