Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
David Moyes knattspyrnustjóra Everton finnst Belginn Marouane Fellaini vera fljótur að aðlagasta lífinu í ensku úrvalsdeildinni. Moyes borgaði metfé fyrir Fellaini sem skoraði jöfnunarmark Everton gegn Manchester United í síðasta leik.
„Áður en ég keypti Fellaini sagði ég að hann þyrfti kannski svona 10 leiki til að vinna sér inn traust stuðningsmannanna. Leikstíllinn hans er öðruvísi en hann hefur komið vel inn í þetta hjá okkur og skorað nokkur mörk,“ segir Moyes.
„Hann býr yfir mörgum sömu hæfileikum og Tim Cahill. Hann er sterkur í teignum og rólegur á boltanum. Ég held að í framtíðinni muni sjást hversu góðan leikmann við höfum keypt,“ segir Moyes.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana