Slobodan Rajkovic, 19 ára varnarmaður enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea, ætlar að áfrýja árslöngu banni sem hann var dæmdur í eftir að hann hrækti á dómara á Ólympíuleikunum í Peking í sumar þar sem hann lék með landsliði Serbíu.
Rajkovic gekk í raðir hollenska liðsins FC Twente í sumar á láni en því liði stýrir fyrrverandi landsliðsþjálfari Englands, Steve McLaren. Það var svo seinna um sumarið að hann var dæmdur í bann í eitt ár fyrir Ólympíuhrákuna.
Stjórnarformaður Twente ætlar nú að reyna fá banninu hnekkt. ,,Okkur líkar ekki hversu langan tíma þetta hefur tekið. Við gætum hafa fengið Rajkovic fyrir þremur mánuðum síðan og við borguðum mikið fyrir hann," segir stjórnarformaðurinn við hollenskt blað í dag.
Málið verður tekið fyrir í höfuðstöðvum alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, 10. nóvember.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana