ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Guðmundur: Ekkert kjaftæði í gangi

22:59 › 29. október 2008
Róbert Gunnarsson með tilþrif af línunni

Róbert Gunnarsson með tilþrif af línunni DV Mynd/Róbert Reynisson

„Varnarleikurinn var frábær í fyrri hálfleik og sóknarleikurinn ekki mikið vandamál.“ sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, við DV eftir 40-21 sigurleikinn á Belgum í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik í kvöld.

Ísland leiddi í hálfleik, 19-9, og keyrðu íslensku strákarnir yfir Belgana við hvert tækifæri. „Mér fannst karakter hjá okkur að koma af krafti inn í leikinn og vanmeta þá ekkert. Það var ekkert kjaftæði í gangi,“ sagði Guðmundur sem var þó ekki mjög ánægður með varnarleikinn í seinni hálfleik.

„Varnarleikurinn datt of langt niður í síðari hálfleik og það er eitthvað sem við þurfum að skoða,“ sagði Guðmundur.

Nánar er farið yfir leikinn og rætt við Guðmund í DV á morgun



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.