ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Barton aldrei skort hugrekki

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:23 › 29. október 2008
Barton á beinu brautinni?

Barton á beinu brautinni? Mynd/AFP

„Þetta var fyrir alla stuðningsmennina og allt fólkið sem ég hef brugðist,“ segir Joey Barton, leikmaður Newcastle, um vítið sem hann skoraði út í sigri liðsins á WBA í gærkvöldi. Hann vonast til þess að mörkin verði fleiri og ítrekar að eitt hafi hann aldrei skort, hugrekki.

Þegar Shola Ameobi var felldur í teignum gegn WBA hljóp Barton strax að boltanum og bað um að taka vítið þó Obafemi Martins taki þau venjulega fyrir Newcastle.

„Fólk hefur verið að spurja mig hvort þetta sé mín besta stund sem leikmaður Newcastle en hún er hátt á listanum allavega. Leikurinn gegn Tottenham á útivelli í fyrra var stór stund fyrir mig ásamt fyrsta leiknum mínum fyrir Newcastle. En þegar maður vinnur er það alltaf stór stund,“ segir Barton.

„Eitt sem aldrei verður hægt að segja um mig er að mig skorti hugrekki.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.