Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, hefur skorið átján manna hóp sinn niður í fjórtán fyrir leikinn gegn Belgíu í undankeppni EM í kvöld en aðeins mega fjórtán leikmennmenn vera á skýrslu. Það eru þeir Hannes Jón Jónsson, Rúnar Kárason, Kári Kristján Kristjánsson og Sturla Ásgeirsson sem horfa á leikinn úr áhorfendastæðunum að þessu sinni.
Það þýðir að eini nýliðinn í hópnum, Aron Pálmarsson, er í liðinu og fær væntanlega tækifæri í kvöld. Þá munu Einar Hólmgeirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson skipta á milli sín skyttustöðunni hægra meginn en á hægri vænginn vantar Ólaf Stefánsson, Alexander Petterson og Bjarna Fritzson.
Hópurinn í kvöld:
Arnór Atlason, FCK
Aron Pálmason, FH
Ásgeir Örn Hallgrímsson, GOG
Björgvin Gústavsson, Bittenfeld
Einar Hólmgeirsson, Grosswallstadt
Guðjón Valur Sigurðsson, Rhein-Neckar Löwen
Hreiðar Guðmundsson, Sävehof
Ingimundur Ingimundarson, Minden
Logi Geirsson, Lemgo
Ragnar Óskarsson, Dunkurque
Róbert Gunnarsson, Gummersbach
Sverre Jakobsson, HK
Vignir Svavarsson, Lemgo
Þórir Ólafsson, Lübbecke





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
20 flott mörk frá EM í handbolta
Danir Evrópumeistarar í handbolta
Króatar hirtu bronsið á EM
Guðjón Valur í úrvalsliði EM í Serbíu
Ísland fékk draumadrátt í umspili fyrir HM 2013