ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Gengi krónunnar og Tottenham svipað

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:35 › 21. október 2008
Skuggalega líkt

Skuggalega líkt

Tvennt hefur verið langt frá því að vera í lagi síðustu vikur. Gengi íslensku krónunnar og gengi Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. Þegar gengi þeirra er borið saman síðustu sjö ár kemur í ljós að gengi krónunnar og Tottenham hefur verið svipað.

Litlu munar á gengisvísitölu krónunnar og gengi Tottenham árin 2001-2005 en árin 2006 og 2007 var krónan þó mun stöðugri en Tottenham. Þessir tveir ágætu vinir hafa nú tekið höndum saman aftur og eru bæði í ruglinu, hvort í sinni deild.

Gengisvísitalan hefur aldrei verið hærri og að sama skapi hefur Tottenham sjaldan byrjað jafnilla í ensku úrvalsdeildinni. Liðið er með tvö stig á botni ensku úrvalsdeildarinnar, án sigurs í fyrstu átta leikjunum.

Nú fljúga einnig um netið skopmyndir af Tottenham en útlitið hefur sjaldan verið jafndökkt á White Hart Lane.

Stjórn Tottenham hefur þó gefið það út að staða Juande Ramos, stjóra liðsins, sé trygg og hann muni sjá um að rífa liðið upp. Ríkisstjórn Íslands hefur þó ekki gefið út hvort Ramos eigi að hjálpa til við að rétta hlut krónunnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.