Þjóðverjar vinna Íslendinga með átta mörkum

Íslenska karlalandsliðið í handbolta lá í valnum gegn því þýska þegar þeir léku gegn þeim í dag með 35 mörkum gegn 27 á Evrópumótinu sem nú fer fram í Noregi. Leikurinn fór illa af stað og lentu Íslendingar strax nokkrum mörkum undir. Íslendingar náðu sér þó á strik í seinni hálfleik og náðu að saxa á forskot Þjóðverjanna. Allt kom fyrir ekki og náði þýska landsliðið yfirhöndinni á ný. Ólafur Stefánsson var markahæstur Íslendinga með átta mörk. Íslendingar sitja stigalausir á botni milliriðilsins.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.