Keiko var og er, ásamt Björk og Eiði Smára Guðjohnsen, einn þekktasti Íslendingurinn. Árið 1976 hófust háhyrningaveiðar og -sala sem fjáröflunarleið fyrir Sædýrasafnið. Keiko var veiddur árið 1979 við Reyðarfjörð og gefið nafnið Siggi. Árið 1982 var hann seldur til sædýragarðsins Marineland við Niagara-fossa. Um tíma var hann í Mexíkó en öðlaðist heimsfrægð árið 1993 þegar hann kom fram í kvikmyndinni Free Willy. Keiko vakti mikla fjölmiðlaathygli um allan heim og hafið var átak til að sleppa honum lausum. Það var gert árið 2002 og dó hann við Noregsstrendur rúmu ári síðar úr lungnabólgu. Ragnhildur Jónsdóttir, sem vann með háhyrningum í Sædýrasafninu, segir: „Að sleppa honum var auðvitað grimmd. Hann hefði átt að fá að vera í dekri og umönnun og fá sína feitu síld á sínum tíma.“