Í gegnum tíðina hefur Ísland þótt ágætis staður fyrir ráðstefnur og fundi. Leiðtogafundur Richards Nixon Bandaríkjaforseta og Georges Pompidou á Kjarvalsstöðum árið 1973 var einn af þeim stærstu þar sem Atlantshafsbandalagið var rætt ásamt öðru. Nixon hafði þó komið áður til Íslands, árið 1956, þegar hann var varaforseti undir Eisenhower. Kom hann hingað bæði til þess að hitta bandaríska hermenn á Keflavíkurflugvelli og íslenska ráðamenn. Á flugi sínu til Íslands árið 1973 minntist hann þessa fundar og þeirrar hlýju móttöku sem hann fékk frá hermönnunum í Keflavík, „þeim guðsvolaða stað“. Spurning er hvort Donald Trump hafi lært af forvera sínum þegar hann kallaði heilu löndin og heimsálfurnar „skítaholur“.