„Við höfum útsýni yfir hraunið og Reykjanesbrautina. Það hefur verið að villast eitthvað fólk þarna í sumar. Vill þá ekki betur til en að viðkomandi sest niður og byrjar að þessu,“ segir Ármann Óskarsson í samtali við mbl.is en hann birti á Youtube myndskeið af ferðamanni sem kúkaði í hrauninu hjá Reykjanesbraut.
Upphaflega tók Ármann myndskeiðið upp til að senda á vinnufélaga en hann taldi manninn hafa villst af leið. Villtir ferðamenn hafa orðið vinnustaðagrín á milli Ármanns og félaga hans. Sagði hann atvikið aðalega fyndið.
„Það á enginn leið þarna um. Þetta truflar engan. Þetta var bara sérstaklega fyndið þar sem þetta var við eina fjölförnustu götu landsins.“