fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Úlfynjan frá Krasnoufimsk

Irinu þótti sopinn góður – Hún greip til örþrifaráða

Kolbeinn Þorsteinsson
Sunnudaginn 25. júní 2017 23:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússneska konan Irina Gaidamachuk sat ekki auðum höndum um átta ára skeið, 2002 til 2010, í Sverdlovsk-héraði í Rússlandi. Irina fæddist árið 1972 í bænum Naygan og varð ung að árum háð áfengi. Upp úr 1990 fluttist Irina til Krasnoufimsk, hitti þar mann sem hún giftist og eignaðist með tvö börn.

En áfengisdjöfullinn hafði tekið sér bólfestu í Irinu sem nærði hann ótæpilega á vodka. Sambýlismanni hennar hugnaðist ekki ástandið og forðaðist hann í lengstu lög að láta Irinu fá fé, taldi enda víst að það færi allt í áfengi. En Irina dó ekki ráðalaus.

Ódýr mannslíf

Árið 2002 brá Irina á það ráð að þykjast vinna hjá félagsþjónustunni og undir því yfirskini komst hún inn á heimili grunlauss fólks á aldrinum 61 árs til 89 ára.

Eftir að hafa áunnið sér traust fólksins kom hún því að óvöru og sló það í höfuðið með hamri eða öxi.
Síðan hirti hún það fé sem var að finna í veskjum eða handtöskum fórnarlamba sinna. Á átta ára tímabili hafði Irina ekki nema sem samsvaraði um 130.000 íslenskum krónum upp úr krafsinu og sum fórnarlamba henna voru ekki nema 2.500 króna virði.

Við lögregluna sagði hún: „Ég gerði það fyrir peninga. Ég vildi eingöngu vera venjuleg móðir, en ég hafði óstjórnlega þörf fyrir áfengi. Yuri, maðurinn minn, vildi ekki láta mig fá pening fyrir vodka.“

Slapp með líftóruna

Aðeins einum lífeyrisþega tókst að flýja þau örlög sem Irina, sem hafði meðal annars fengið viðurnefnið Úlfynjan frá Krasnoufimsk, hafði ætlað honum og vísbendingar frá honum gerðu lögreglunni ljóst að gamalmennamorðinginn var í raun kona. „Í upphafi töldum við að aðeins karlmaður væri nógu grimmur til morða af þessu tagi,“ var haft eftir einum lögreglumanni.

Reyndar hafði lögreglan í Krasnoufimsk gengið út frá því við rannsókn morðanna sem Irina framdi að morðinginn væri karlmaður íklæddur kvenmannsfötum.

Lögreglan afrekaði einnig að handtaka blásaklausa konu, Irinu Valeyeva, þá 29 ára, og ná út úr henni játningu.

Í gervi málara

Árið 2010, eftir að hafa yfirheyrt yfir 3.000 manns, tókst lögreglunni loksins að hafa hendur í hári Irinu, sem hafði þá kastað gervi starfsmanns félagsþjónustunnar fyrir róða og þóttist vera málari.

Síðasta fórnarlamb hennar var Alexandra Povaritsyna, 81 árs, og bauðst Irina til að mála íbúð hennar. Þegar Irina yfirgaf íbúðina var Alexandra liðið lík.

Nágrannar gáfu lögreglunni lýsingu á „málaranum“ og Irina var handtekin.

Fimm ára afsláttur

Þeir sem til Irinu þekktu komu af fjöllum og gátu hreinlega ekki trúað því að hún væri fjöldamorðingi. Eiginmaður hennar sagði: Ég bjó með henni í fjórtán ár og hafði ekki grænan grun um þetta.“

Í júní 2012 var Irina dæmd til 20 ára fangelsisvistar, sem ættingjum fórnarlamba hennar fannst helst til vægur dómur. Dómarinn í málinu sagðist hafa dregið fimm ár frá 25 ára hámarksrefsingu vegna þess að Irina væri móðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Zidane hvattur til að taka við United

Zidane hvattur til að taka við United
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni
Fókus
Fyrir 17 klukkutímum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun