fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Varmenni í Víetnam

Myrtu þrettán manns með eitri – Ættingjar á meðal fórnarlambanna

Kolbeinn Þorsteinsson
Sunnudaginn 11. júní 2017 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá því snemma árs 1998 fram í ágúst 2001 var sem faraldur geisaði í Ho Chi Min-borg í Víetnam og nærliggjandi héruðum; Binh Duong, Binh Phuoc og Dong Nai. Í valnum lágu þrettán manns, sem er kannski ekki mikill fjöldi með tilliti til íbúafjölda landsins, sem allir höfðu sýnt sömu einkenni áður en þeir skildu við; svima, uppköst og höfuðverk.

Á sjúkrahúsum klóruðu læknar sér í kollinum, gátu enda ekki úrskurðað um dánarorsök viðkomandi einstaklinga. Á sumum sjúkrahúsum voru leiddar að því líkur að lungnabólga eða blóðtappi hefði orðið einhverjum þeirra að aldurtila.

Með eitur í veskinu

En tíminn átti eftir að leiða í ljós að fólkið hafði ekki dáið eðlilegum dauðdaga og í júlí árið 2000 dró til tíðinda. Lögreglan hafði einhverra hluta vegna fengið augastað á Le Thanh Van, þá tæplega fimmtugri konu sem bjó í 10. hverfi Ho Chi Minh-borgar. Grunsemdir lögreglunnar höfðu vaknað þegar 2,8 grömm af blásýrusalti fundust í veski hennar.

Blásýrusalt ku vera baneitrað og nægja 0,15–2,0 grömm til að senda manneskju yfir móðuna miklu. 

Sönnunargögn skortir

En því fór fjarri að málið væri til lykta leitt og var Le Thanh Van síðar sleppt úr haldi vegna skorts á sönnunargögnum. Þeir sem fóru með rannsókn málsins höfðu prófað blásýrusaltið á dýrum sem drápust í kjölfarið, en hvorki fannst tangur né tetur af eitrinu í hræjum dýranna í kjölfarið. Af þeim sökum var ekki hægt að færa sönnur á að blásýrusaltið hefði valdið dauða þeirra eða fórnarlambanna þrettán.

Drógu játningar til baka

Lögreglan lét þó ekki deigan síga, en Le Thanh Van fékk svigrúm til frekari ódæða því hún var ekki handtekin aftur fyrr en í ágúst árið 2001. Hún var þá ákærð fyrir að hafa banað þrettán manns með því að setja blásýrusalt í mat þeirra og drykk með það fyrir augum að komast yfir eigur þeirra.

Eiginmaður hennar, Diu Dang Quang, var einnig handtekinn, grunaður um aðild að morðunum. Skötuhjúin gengust bæði við morðunum þegar þau voru handtekin, en drógu játningar sínar síðar til baka. Fullyrti Le Thanh Van að lögreglan hefði „neytt“ hana til að játa sig seka. 

Tengdamóðir og mágur

Hvað sem því líður þá var réttað yfir Le Thanh Van og Diu Dang Quang vegna morðanna, en á meðal fórnarlambanna voru tengdamóðir Van, mágur og fósturmóðir.

Upp úr krafsinu hafði parið haft fé fórnarlambanna í víetnömskum dongum og bandarískum dollurum auk ýmislegs annars. Heildarverðmætið var 300 milljónir víetnamskra donga, um 20.000 Bandaríkjadala þá. Talið var að Van hefði beitt persónutöfrum sínum til að kynnast og vingast við auðugt fólk og síðan, með brögðum, fengið það til að innbyrða eitraðan mat eða drykk. Persónulegar deilur kostuðu hins vegar móður og bróður Quang líftóruna.

Vinargreiði

Við réttarhöldin sagði Le Thanh Van að blásýrusaltið sem fannst í veski hennar hefði hún fengið hjá vini föður hennar. Umræddur vinur, Thien Truong læknir í Dong Nai-héraði, hafði að sögn Van beðið hana að fara með eitrið til Ho Chi Minh til rannsóknar. „Ég vissi ekki einu sinni um hvaða efni var að ræða fyrr rannsóknarlögreglan sagði mér að gulleita efnið sem fannst í veskinu mínu væri blásýrusalt,“ sagði Van.

Eitrað fyrir ættingja vinar læknis

Sagði hún enn fremur að vinur Truong læknis ynni hjá lögreglunni í Binh Thuan-héraði og að ættingja þessa vinar hefði verið gefið sama eitur og fannst í veski hennar. „Vinurinn leitaði aðstoðar Truong læknis og læknirinn bað mig um að hjálpa,“ fullyrti Van.

Þegar sækjandi spurði Van hvers vegna lögreglan á staðnum hefði ekki getað rannsakað efnið, var fátt um skýringar hjá Van. Slíkt hið sama var uppi á teningnum þegar hún var spurð af hverju Truong læknir hefði ekki leitað til viðurkenndra stofnana til að fá efnið rannsakað.

Fórnarlömbin mögulega fleiri

Van var einnig grunuð um aðild að átta öðrum málum sem vörðuðu sextán manns. Þeim hafði verið byrlað eitur og dóu þrír einstaklingar af þeim sökum. Ekki tókst að afla sönnunargagna sem bendluðu Van við þau mál.

Í byrjun september 2004 var Le Thanh Van dæmd til dauða fyrir að hafa byrlað þrettán manns inn eitur. Réttarhöldin tóku aðeins átta daga og Van var einnig ákærð fyrir þjófnaði og að hafa eitur í fórum sínum.
Hæstiréttur Víetnam staðfesti dauðadóminn í febrúarbyrjun árið 2005 og mun honum hafa verið fullnægt með aftökusveit. Diu Dang Quang ku hafa hlotið sömu örlög.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta