Dómstóll í Þýskalandi hefur synjað konu um aðgang að persónuupplýsingum manns sem hún varð þremur nóttum með á hóteli í Halle fyrir sjö árum síðan. Konan fór fram á það að fá fullt nafn mannsins hjá hótelinu sökum þess að rúmum níu mánuðum eftir ástarfundi þeirra á hótelinu eignaðist hún son.
Konan þekkti manninn aðeins sem Michael en vildi fá fullt nafn svo hún gæti krafið hann um meðlag með barninu.
Dómurinn hafnaði beiðni konunnar og bar því meðal annars við að fjórir aðrir karlmenn með sama nafni hefðu gist á hótelinu á umræddu tímabili. Það væri brot gegn friðhelgi einkalífs þeirra manna.
BBC greinir frá því að óljóst sé einnig hvort nafnið sem maðurinn gaf konunni sé raunverulega hans rétta nafn.