Gáfnafar og glæpahneigð fara ekki alltaf saman. Það sannaðist í apríl 2015 þegar Andrew nokkur Hennels ákvað að láta greipar sópa um Tesco-stórmarkaðinn í Norfolk á Englandi.
Áður en Andrew lagði upp í þá frægðarför upplýsti hann um áform sín á Facebook; „Doing. Tesco. Over.“
Um fimmtán mínútum síðar greip lögreglan Andrew glóðvolgan skammt frá Tesco í King’s Lynn í Norfolk. Hann var vopnaður hnífi og með ránsfenginn úr Tesco; 410 sterlingspund. Andrew fékk fjögurra ára dóm.