Skilnaður að öllum líkindum á dagskrá
Rússneskur eiginmaður hefndi sín á eiginkonu sinni með kaldrifjuðum hætti á dögunum. Hjónin, sem eru frá St. Pétursborg, voru að ganga í gegnum erfiðleika í hjónabandinu í kjölfar þess að að eiginkonan hafði reynst manni sínum ótrú. Ýmislegt hafði eflaust gengið á en að lokum ákvað eiginkonan að losa sig við eftirnafn eiginmannsins. Hugdettuna fékk hún þegar að stórmarkaðurinn sem hún starfar hjá, „Veniy“, bauð hverjum þeim, sem myndi taka upp nafn keðjunnar sem eftirnafn, verðlaun að andvirði um 100 þúsund krónur. Þetta tækifæri greip konan fegins hendi.
Eiginmaðurinn var afar ósáttur við þennan gjörning og ákvað að hefna sín grimmilega samkvæmt frétt Daily Mail. Hann pantaði steypubíl á tiltekinn stað og dældi síðan gríðarlegu magni af steypu inn í bifreiðina. Fylgir með sögunni að konan hafi haft sérstakt dálæti á að hafa bílinn sinn hreinan og fínan. Athæfið hefur því eflaust sært hana verulega.
Framtíð hjónabandsins er að öllum líkindum í uppnámi