fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Langar þig að eignast smábæ? Þessi er til sölu og kostar 400 milljónir króna

Tiller var eitt sinn blómlegur iðnaðarbær

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 19. mars 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í vesturhluta Oregon, ekki ýkja langt frá kyrrahafsströnd ríkisins, stendur húsaþyrping sem lætur ekki mikið yfir sér. Hér er um að ræða smábæinn Tiller sem nú er til sölu eins og hann leggur sig og er verðið 3,5 milljónir dala, eða tæpar 400 milljónir króna.

Bærinn var fyrst boðinn til sölu árið 2015 en hann er á fínum stað, um 370 kílómetra suður af Portland í Oregon og stendur hann á 100 hektara landi. Íbúar í bænum eru aðeins tveir talsins, fyrrverandi kennari og prestur, en um 250 manns búa í næsta nágrenni.

Allt í allt eru sex hús í bænum sem fylgja með í kaupunum, þar á meðal íbúðir, bensínstöð, verslun og skóli.

Þó bærinn megi muna fífil sinn fegurri býður hann upp á ýmsa möguleika fyrir þá sem eru handlagnir og hafa pening á milli handanna. Eitt sinn var bærinn blómlegur iðnaðarbær en eftir að timburvinnsla lagðist af á svæðinu fækkaði íbúum mikið.

Garrett Zoller, fasteignasali sem sér um söluna, segir við breska blaðið Mirror að nokkur áhugi sé á bænum. Meðal annarra hafi kínverskir fjárfestar sýnt honum áhuga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Bjóða honum nýjan samning þó sá gamli gildi í sex ár til viðbótar

Bjóða honum nýjan samning þó sá gamli gildi í sex ár til viðbótar
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fundurinn í London gekk ekki vel

Fundurinn í London gekk ekki vel
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Frábær tíðindi fyrir Villa – Sjá hann sem sinn Sir Alex Ferguson

Frábær tíðindi fyrir Villa – Sjá hann sem sinn Sir Alex Ferguson