fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024

Green Chain-nauðgarinn

Robert var afkastamikill í glæpum sínum – Vistaður á geðsjúkrahúsi

Kolbeinn Þorsteinsson
Sunnudaginn 19. febrúar 2017 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bretinn Robert Clive Napper er elstur barna hjónanna Brians og Pauline Napper, fæddur í Erith í London og ólst upp í Plumstead í suðausturhluta London. Hjónaband foreldra hans var stormasamt og varð Robert iðulega vitni að því þegar faðir hans lagði hendur á móður hans. Það tók endi þegar Robert var tíu ára er foreldrar hans skildu.

Robert og systkin hans, tveir bræður og systir, voru sett í fóstur og fengu sálfræðimeðferð sem í tilfelli Roberts varði í sex ár.

Atferlisbreyting í kjölfar misnotkunar

Þegar Robert var tólf ára sætti hann misnotkun af hálfu fjölskylduvinar. Sá fjölskylduvinur fékk fyrir vikið fangelsisdóm en Robert var að sjálfsögðu litlu bættari við það. Hann hvarf inn í sig, varð snyrtilegur svo jaðraði við áráttu og afskiptalaus.

Þegar framtíðin var óskrifað blað.
Ungur Robert Þegar framtíðin var óskrifað blað.

Systkin hans fóru ekki varhluta af breytingum á Robert því hann níddist á þeim auk þess sem hann lá á gægjum þegar færi gafst er systir hans afklæddist.

Fetar stigu afbrota

Árið 1986 fékk Robert dóm eftir að hafa beitt loftbyssu við óskilgreint afbrot og fékk síðar reynslulausn. Í október 1989 lét lögreglan undir höfuð leggjast að kanna mál í kjölfar símtals við móður Roberts. Pauline sagði lögreglunni að Robert hefði viðurkennt fyrir henni að hafa nauðgað konu á almenningi í Plumstead. Lögreglan hafði ekki fengið vísbendingar um nokkurn slíkan atburð og hélt því að sér höndum.

Síðar, þegar Robert fékk sinn annan fangelsisdóm, kom í ljós að móðir hans hafði engu logið; konu hafði verið nauðgað fyrir framan börn sín en, og þar lá hundurinn grafinn, þetta hafði átt sér stað í húsi við almenninginn í Plumstead, en ekki á almenningnum sem slíkum.

Var stungin 49 sinnum.
Rachel Nickell Var stungin 49 sinnum.

Myrðir konu og aðra

Víkur nú sögunni til 15. júlí 1992. Daginn þann, á Wimbledon-almenningnum, stakk Robert konu að nafni Rachel Nickell 49 sinnum með hnífi, fyrir framan tveggja ára son hennar sem reyndi í örvæntingu að vekja móður sína í kjölfarið.
Robert var yfirheyrður af lögreglunni en síðan útilokaður sem sökudólgur og ekki kannaður frekar.

Hann fékk því svigrúm til að endurtaka leikinn og það gerði hann svikalaust og gott betur í nóvember 1993. Þá réðst hann á Samönthu Bisset á heimili hennar í Plumstead og stakk hana til dauðs. Að því loknu misþyrmdi hann fjögurra ára dóttur Samönthu, Jazmine Jemimu, kynferðislega og kæfði síðan.

Sagt er að ljósmyndari lögreglunnar hafi verið frá vinnu í tvö ár vegna þess sem hann sá á vettvangi ódæðisins.

Green Chain-nauðgarinn

Robert var sakfelldur fyrir morð á Samönthu og dóttur hennar í október 1995. Þá játaði hann á sig nauðgun og tilraunir til nauðgana en neitaði aðild að morðinu á Rachel Nickell.

Lentu í klónum á Robert Napper.
Samantha og Jazmine Lentu í klónum á Robert Napper.

Talið er líklegt að Robert og „Green Chain-nauðgarinn“ séu einn og sami maðurinn en sá var bendlaður við að minnsta kosti 70 hrottalegar líkamsárásir í suðausturhluta London yfir fjögurra ára tímabil.

Andlega vanheill

Tekist hefur að tengja Robert við elstu árásirnar sem eignaðar voru „Green Chain-nauðgaranum“.

Í desember 2008 hafði DNA-rannsóknum fleygt svo fram að unnt var að ákæra Robert fyrir morðið á Rachel Nickell og var hann sakfelldur fyrir manndráp í því máli. Þá var enda ljóst að Robert gekk ekki heill til skógar hvað andlega heilsu áhrærði og hafði verið greindur með geðklofa og Asperger-heilkenni í ofanálag.

Hann hefur síðan 1995 verið vistaður á Broadmoore-geðsjúkrahúsinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

KSÍ segir ráðningu á framkvæmdarstjóra í góðum farvegi

KSÍ segir ráðningu á framkvæmdarstjóra í góðum farvegi
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Selfoss borgar stóran hluta af myndarlegum launapakka Gary Martin

Selfoss borgar stóran hluta af myndarlegum launapakka Gary Martin
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Bayern byrjað að ræða við Rangnick um að taka við

Bayern byrjað að ræða við Rangnick um að taka við
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Nú líklegast að hann fari til Spánar

Nú líklegast að hann fari til Spánar
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Bjóða honum nýjan samning þó sá gamli gildi í sex ár til viðbótar

Bjóða honum nýjan samning þó sá gamli gildi í sex ár til viðbótar
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“