Valdamestu menn Norður-Ameríku eru afar ólíkir – Báðir frjálshyggjumenn
Þjóðhöfðingjarnir Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, og Donald Trump Bandaríkjaforseti, hittust í vikunni. Ágætlega fór á með mönnunum og fundur þeirra virðist hafa verið kurteisislegur. Þessir tveir valdamenn í Norður-Ameríku eru áberandi ólíkir menn, þótt báðir aðhyllist þeir frjálshyggju. Trudeau er sérstaklega vel þokkaður og hófsamur maður en það verður seint sagt um kollega hans sunnanmegin landamæranna. Mennirnir eiga ekki margt sameiginlegt ef frá er talið að feður þeirra voru báðir valdamiklir menn. Hér fyrir neðan eru farið yfir ýmsar staðreyndir um þessa tvo þjóðarleiðtoga og rakið hvernig þeir hafa tjáð sig með ólíkum hætti um sömu málin.
Trudeau: Pierre Trudeau, fyrrverandi forsætisráðherra.
Trump: Fred Trump, fasteignamógúll og fjárfestir.
Trudeau: 43 ára, næstyngstur í sögu Kanada.
Trump: 70 ára, sá elsti í sögunni.
Trudeau: Í barnæsku, á góðgerðasamkomu.
Trump: Í samkvæmi vegna tískuviku, þar sem hann var mættur með annarri konu.
Trudeau: 52%.
Trump: 44%.
Trudeau: Hnefaleikar.
Trump: Spilaði hafnabolta í framhaldsskóla.
Trudeau: „Sögustund um N‘dilo Aborginal Head Start prógrammið – takk fyrir að bjóða mér!“
Trump: „Nordstrom hefur komið illa fram við dóttur mína, Ivönku. Hún er frábær manneskja – lætur mig alltaf breyta rétt! Hræðilegt!“
Trudeau: „Við erum Kanadamenn. Okkar hlutverk er að hjálpa öðrum.“
Trump: „Ameríka í fyrsta sæti. Horfum fyrst til Ameríku, ekki alþjóðasamfélagsins er okkar mottó.“
Trudeau: Mætti á fjársöfnunarkvöld kínversk-kanadískra auðmanna sem söfnuðu stofnfé fyrir nýjan banka, í maí í fyrra.
Trump: Valdi þrjá milljarðamæringa í ríkisstjórn sína.
Trudeau: Fyrir að skattleggja flutningskostnað fólks sem flytur búferlum vegna vinnu.
Trump: Fyrir að halda úti áróðurskenndri vefsíðu undir forystu hvítra þjóðernissinna.
Trudeau: „Við munum ekki skilja barnabörnin okkar eftir með byrðar hlýnunar jarðar. Við verðum að bregðast við þegar í stað.“
Trump: „Hugmyndin um hlýnun jarðar var fundin upp af Kínverjum til að bandarísk fyrirtæki yrðu ekki eins samkeppnishæf og þau kínversku.“
Trudeau: „Tökum þeim opnum örmum.“
Trump: „Bönnum þá.“
Trudeau: „Ég er femínisti.“
Trump: „Fyrst vil ég segja: Enginn ber meiri virðingu fyrir konum en Donald Trump. Ég er að segja þér það, enginn. Dóttir mín, Ivanka, segir alltaf, „Pabbi, enginn virðir konur meira en þú“.“
Trudeau: „Það tekur mig sárt að heyra af fráfalli þaulsætnasta þjóðhöfðingja í sögu Kúbu.“
Trump: „Fidel Castro er dauður.“
Trudeau: „Við verðum að átta okkur á að viðskipti eru af hinu góða, ekki bara fyrir þjóðfélög heldur einnig fyrir fyrirtæki og einstaklinga.“
Trump: „NAFTA er kannski versti viðskiptasamningur sögunnar.“
Trudeau: Hefur sagt að hann vilji að hún leiki hann í kvikmynd. „Hún er það góð.“
Trump: Kallaði hana eina ofmetnustu leikkonu Hollywood.
Trudeau: „Það er mikilvægt að undirstrika mikilvægi hlutverks fjölmiðla í samfélagi manna.“
Trump: „Þetta fólk [blaðamenn] tilheyrir lægsta lífsforminu. Ég segi það satt. Þeir eru lakasta útgáfa mannsins.“