fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Róstur og framhjáhald

Marissa Devault var skuldum vafin – Dale Devault var líftryggður

Kolbeinn Þorsteinsson
Laugardaginn 11. febrúar 2017 22:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn 8. apríl, 2014, komst kviðdómur í máli Marissu DeVault, þá 36 ára konu frá Arizona í Bandaríkjunum, að þeirri niðurstöðu að hún væri sek um morð á eiginmanni sínum, Dale Harrell.

Marissa réðst á eiginmann sinn með hamri á heimili þeirra hjóna í Gilbert í Maricopa-sýslu að kvöldi 14. janúar 2009.
Hún fullyrti síðar að Dale hefði verið ofbeldisfullur eiginmaður og hefði tekið hana kverkataki og neytt hana til samræðis og það hefði ekki verið nein nýlunda. Bar hún því við að um sjálfsvörn hefði verið að ræða.

Hjartaáfall og blóðkökkur

Reyndar lést Dale ekki strax. Hann fékk slæma höfuðáverka og var á batavegi þegar hann fékk slag og síðar hjartaáfall í tvígang. Hann var því orðinn frekar veikburða þegar hann, þremur vikum eftir árásina, fékk blóðkökk í lungun sem dró hann til dauða.

Nú, en Marissa var í kjölfarið ákærð fyrir morð og lögðu sækjendur ekki trúnað á þær útskýringar Marissu að um sjálfsvörn hefði verið að ræða þetta afdrifaríka kvöld í janúar.

Dale var ekki við eina fjölina felldur.
Eiginmaðurinn Dale var ekki við eina fjölina felldur.

Skuldum vafin

Sækjendur voru þess fullvissir að morðið mætti rekja til fjárhagsörðugleika Marissu. Hún hefði viljað komast yfir líftryggingu Dales til að geta gert upp 360.000 dala skuld við „sykurpápa“ nokkurn, Allen Flores, sem hún hafði kynnst á netinu.
Reyndar hafði Marissa einnig skellt skuldinni á vin þeirra hjóna, sem glímdi við heilaskaða og bjó á heimili þeirra. Máli sínu til stuðnings framvísaði hún skriflegri játningu vinarins.

Fyrrverandi elskhugi

Að sögn sækjenda hafði Marissa leitað til fyrrverandi elskhuga og beðið hann um að myrða Dale. Elskhuginn fyrrverandi bar að Marissa hefði beðið hann að „sjá um“ Dale – reyndar sagðist hann ekki hafa verið alveg viss um hvað „sjá um“ merkti nákvæmlega, en það hefði engu breytt; hann vildi ekki hafa neitt saman við Marissu að sælda.

Til að útskýra sín miklu fjárráð, sem tilkomin voru vegna lánsins frá Allen Flores, spann Marissa heilmikinn lygaþráð. Vinum og ættingjum, og hugsanlega Dale, sagði hún að hún hefði fengið féð í arf; Flores hefði verið ástmaður látins, samkynhneigðs stjúpföður hennar. Hún átti reyndar stjúpföður, en hann var hvorki dauður né samkynhneigður.

Allen Flores; ekki allur þar sem hann er séður.
„Sykurpápi“ Allen Flores; ekki allur þar sem hann er séður.

Vafasamur pappír

Allen þessi Flores var greinilega vafasamur pappír. Kynni hans og Marissu hófust á síðu „sykurpápa“ sem lánuðu fjárvana konum fé gegn kynferðislegri þjónustu af ýmsum toga.

Allen var fullvissaður um að hann myndi ekki varpa sök á sig þótt hann vitnaði gegn Marissu og upplýsti hann um þá ráðgjöf sem hann hafði veitt henni varðandi líftryggingu eiginmanns hennar og við að falsa játningu heilaskemmda vinarins.
Þessum samningi Allens og ákæruvaldsins fylgdi þó sá böggull skammrifi að hann fékk að hluta til friðhelgi hvað áhrærði mögulega málshöfðun vegna barnakláms sem fannst í tölvu hans. En það er annað mál.

Ekki við eina fjölina felld

Á meðal vitna við réttarhöldin var dóttir Marissu og Dales, sem var 13 ára þegar ósköpin áttu sér stað. Sagði hún að heimilislífið hefði tíðum verið „róstusamt“ og að faðir hennar hefði oft verið ofbeldisfullur í garð móður hennar. Þannig að ekki hafði Marissa logið neinu hvað það varðaði, en slíkt hafði þó farið fullkomlega framhjá vinum og nágrönnum þeirra hjóna. Að sögn dótturinnar mátti vart á milli sjá hvort foreldra hennar var duglegra í framhjáhaldi.

Sem fyrr segir var Marissa sakfelld 8. apríl fyrir morðið, en undir lok sama mánaðar var ákveðið að auðsýna henni miskunn, kasta dauðadómi fyrir róða og láta lífstíðardóm nægja. Marissa Devault getur sótt um reynslulausn árið 2039.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United

Allir þrír leikmenn klárir fyrir United
Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum
Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf
Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“

Segir ráðamönnum að skammast sín – „Hversu aumt getur sálartetur þessa ofurlaunafólks verið?“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Verk og vit sett með pomp og prakt

Verk og vit sett með pomp og prakt
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“

Baldur um ófrægingarherferð gegn sér: „Þetta hefur engin áhrif á okkur Felix“