fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Farþegi bað um vegan-máltíð í fluginu: Trúði ekki eigin augum þegar hann fékk matinn

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 20. nóvember 2017 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera vegan eins og farþegi í millilandaflugi komst að raun um á dögunum.

Farþeginn, Steve Hogarty, er vegan og neytir þar af leiðandi ekki dýraafurða. Hann var um borð í flugvél Avianca-flugfélagsins í Kólumbíu á dögunum þegar hann spurði flugþjóna um borð hvort hann gæti fengið vegan-máltíð í stað venjulegrar heitrar máltíðar sem oftar en ekki samanstendur af einhverju kjötmeti.

Það var lítið mál en Hogarty trúði vart sínum eigin augum þegar hann fékk máltíðina í hendurnar; um var að ræða epli og peru, í plastbakka, borin fram með hnífi og gaffli.

Þó epli og pera séu næringarríkir ávextir duga þeir kannski ekki alveg til að metta svangan maga – nema kannski í skamma stund.

Steve birti færsluna á Twitter þar sem hann fékk mikil viðbrögð, einkum frá þeim sem aðhyllast sama lífsstíl og hann. Sumir tóku undir umkvartanir hans og sögðu frá svipuðum uppákomum.

Einn sagðist til dæmis nýlega hafa verið í flugi og hann hafi spurt flugþjón hvort hann gæti fengið vegan-máltíð. Því miður bauð flugfélagið ekki upp á þann möguleika en manninum voru þó boðnar sárabætur. Og sárabæturnar voru kjúklingur eða nautakjöt.

Flugfélagið svaraði færslu Steves og sagðist vilja veita fyrsta flokks þjónustu. Var Steve vinsamlegast beðinn um að setja sig í samband við flugfélagið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur

Ógeðslegt athæfi – Pissaði í glas og skvetti á aðra áhorfendur
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum

Leikfimiskennari sakaður um að taka nektarmyndir af yfir 100 stúlkum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það

Setur glæsilegt hús sitt á sölu – Vill fá 800 milljónir fyrir það
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi

Miklar breytingar á enska bikarnum um næstu helgi – Ekki spilað í deildinni um sömu helgi
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona