Handtekinn og látinn dúsa í fangelsi í þrjá daga í Texas
Lögreglumenn í Texas héldu að þeir hefðu komist í feitt þegar þeir stöðvuðu hinn 24 ára gamla Ross LeBeau við hefðbundið umferðareftirlit á dögunum. Við leit í bifreiðinni fundu þeir það sem virtist vera ríflega 250 grömm af metamfetamíni (e. methamphetamine). Útlitið var ekki gott fyrir LeBeau sem færður var í fangaklefa þar sem hann mátti dúsa í þrjá daga.
Ástæðan var sú að tvær fíkniefnaprófanir sem gerðar voru með búnaði á vettvangi gáfu til kynna að þarna væri hið alræmda fíkniefni á ferðinni. LeBeau var þó látinn laus í grænum hvelli og málið látið niður falla hið snarasta þegar ítarlegri niðurstöður rannsókna á fíkniefnunum lágu fyrir. Í ljós kom að LeBeau var hreint ekki með nein fíkniefni, heldur kattasand sem hann geymdi í sokkum í bifreið sinni.
Það eitt og sér virðist næstum nógu furðulegt til að handtaka manninn en raunar var hann að reyna þar húsráð nokkuð sem hermir að losna megi við móðumyndun á bílrúðum með því að hafa kattasand í bílnum.
Hann kannski reynir eitthvað annað næst, en Ross LeBeau ætlar að byrja á að fá afsökunarbeiðni frá ríkinu.