Það borgar sig aldrei að gera tilraunir með skotheld vesti
Tuttugu og fjögurra ára karlmaður, Alexandro Garibaldi, er bak við lás og slá eftir að hafa skotið frænda sinn, hinn tuttugu og þriggja ára Joaquin Mendez.
Það var á laugardag sem Alexandro og og Joaquin fundu skothelt vesti. Málavextir liggja ekki nákvæmlega fyrir, en samkvæmt Tampa Bay Times ákváðu frændurnir að athuga hvort vestið myndi virka. Joaquin klæddi sig í vestið og Alexandro skaut úr skammbyssu sem hann var með á sér.
Það er óhætt að segja að þessi hættulegi leikur hafi endað með ósköpum því Joaquin var fluttur lífshættulega slasaður á sjúkrahús þar sem hann lést af sárum sínum. Að sögn lögreglu fór kúlan í gegnum vestið með fyrrgreindum afleiðingum.
Garibaldi sagði við yfirheyrslur hjá lögreglu að hann hefði komið að frænda sínum særðum. Vitni eru þó sögð hafa bent á hann sem geranda og er hann nú í fangelsi þar sem hann á yfir höfði sér ákæru vegna manndráps.