fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Þrjár konur – eitt morð

Sadie fékk draumaprins Söruh – Hið fullkomna morð mundi leysa málið

Kolbeinn Þorsteinsson
Laugardaginn 27. ágúst 2016 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sarah Williams heitir 35 ára kona frá borginni Chester í norðvesturhluta Englands. Sarah var hjákona 75 ára „sykurpabba“, Davids Hardwick. Hvað sem því fyrirkomulagi leið þá segir sagan að Sarah hafi kolfallið fyrir Ian Johnston, fyrrverandi slökkviliðsmanni sem hún hitti í Chill Factore, innanhússskíðabrekku í Manchester árið 2012.

Samband Söruh og Ians varð skammlíft og Ian batt enda á það eftir að Sarah varð „eigingjörn á hann og erfið“ en hún hélt þó áfram í „óraunhæfa von um draumalíf með hinum fullkomna manni“.

Katrina Walsh var Söruh innanhandar.
Reiðkennari Katrina Walsh var Söruh innanhandar.

Morð skipulagt

Ian kynntist Sadie nokkurri Hartley, þau rugluðu saman reytum og hófu sambúð í Helmshore í Lancashire.
En Söruh hugnaðist ekki að vita af Ian í örmum annarrar konu. Hún greip til þess ráðs að hafa samband við vinkonu sína, Katrinu Walsh, 56 ára reiðkennara, og þær ákváðu að fremja „hið fullkomna morð“.

Í 18 mánuði lögðu þær á ráðin og Katrina skráði öll smáatriði í dagbók sína; Sadie skyldi fyrirkomið í anda „þess sem gerist í njósnasögum“.

Rafbyssan notuð

Stöllurnar gerðu sér ferð til Þýskalands í desember 2015 og keyptu rafbyssu og í janúar 2016 setti Katrina blóm við útidyrnar á heimili Sadie og Ians. Var verknaðurinn hugsaður sem einhvers konar fyrirboði þess sem koma skyldi.
Þann 14. janúar, daginn eftir að dóttir Sadie trúlofaðist, var dyrabjöllunni heima hjá henni hringt og hún fór til dyra.

Fyrir utan stóðu Sarah og Katrina og biðu ekki boðanna. Sadie var lömuð með rafbyssu og síðan stakk Sarah hana og skar með hníf, oftar en 40 sinnum. Sadie var síðan skilin eftir í blóði sínu í anddyrinu. Síðar fannst gaddur úr rafbyssu á kraga blússu hennar.

Kynferðisleg skilaboð

En, eins og síðar kom í ljós, fór því fjarri að um „fullkomið morð“ væri að ræða og Sarah og Katrina þurftu að svara til saka fyrir dómstólum.

Auk þess sem að framan hefur verið reifað kom ýmislegt upp úr kafinu við réttarhöldin. Ian Johnston hafði verið á skíðaferðalagi þegar Sadie var myrt, en hann var ekki allur þar sem hann og Sarah höfðu sent hvort öðru kynferðisleg skilaboð og myndir allar götur frá því að upp úr slitnaði hjá þeim – nánast allt til þess dags er Sarah lét til skarar skríða gegn Sadie.

Sadie Hartley skyldi rutt úr vegi.
Elskaði Ian Sadie Hartley skyldi rutt úr vegi.

Sveifst einskis

Engu að síður þvertók Ian fyrir að hafa kynt undir tilfinningum Söruh og sagði við réttarhöldin að þeirra samband hefði einungis snúist um kynlíf.
Í ljósi orða Katrinu Walsh þarf þó enginn að fara í grafgötur um hugmyndir Söruh hvað samband hennar og Ians áhrærði: Sarah sveifst einskis til að vera með Ian, hún setti meira að segja GPS-sendi á bifreið hans til að fylgjast með ferðum hans.

Myrtu „sér til ánægju“

Dómur lá fyrir 17. ágúst og var dómarinn ómyrkur í máli þegar þar var komið sögu. Sagði hann að Sarah og Katrina hefðu myrt Sadie „sér til ánægju“: Sarah Williams, í eitt og hálft ár úthugsaðir þú morð á konu sem hafði það eitt sér til sakar unnið að elska manninn sem þú girntist. En við skulum taka af allan vafa; þetta var ekki ástríðuglæpur.

Þetta var glæpur hroka, villimennsku en fyrst og fremst hrein illska. Og á þessu 18 mánaða tímabili skipulagningar fannstu í Katrinu Walsh hvort tveggja félaga í andanum og viljugan samverkamann.“

Það tók kviðdóm sjö klukkustundir og níu mínútur að komast að niðurstöðu. Þegar upp var staðið fékk Sarah Williams dóm upp á 30 ár hið minnsta og Katrina Walsh upp á 25 ár hið minnsta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði

Parið vakti athygli allra í gær – Sjáðu hvað þau gerðu meðan heimurinn horfði
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“

Arnar spurður út í ákvörðun sína – „Það er ekkert meira um það að segja“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu

Einmana ekkja taldi sig hafa fundið draumaprinsinn – Í staðinn hófst matröð sem rændi hana aleigunni og loks lífinu
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni

Gunnar lokkaði dreng upp í bíl og misnotaði – Drengurinn tók upp hníf og komst úr íbúðinni
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum