Lögreglan í Brasilíu er ýmsu vön en á dögunum opnuðu lögregluþjónar á rútubílamiðstöðinni Rio de Janeiro tösku sem innihélt nokkuð óvænt.
Eins og sést á myndbandinu var ungur drengur, ellefu ára gamall, ofan í töskunni sem lögregluþjónar opnuðu. Kona, Natasha Vitoriano Souto, var handtekin í tengslum við málið en samkvæmt frétt Globo TV hafði ungi drengurinn beðin hana um að ættleiða sig.
Natasha er búsett í suðurhluta Brasilíu, 800 kílómetra frá Rio, og ætlaði hún að smygla drengnum með sér. Hegðun hennar vakti hins vegar grunsemdir lögreglu. Hún dvaldi langtímum saman á salerni rútubílamiðstöðvarinnar og var með töskuna ávallt með sér í eftirdragi. Fát virðist hafa komið á hana þegar lögregluþjónar spurðu hana út í innihald töskunnar sem varð til þess að hún var leidd á brott.
Natasha sagðist hafa fundið drenginn á götum Botafogo og hann hafi beðið hana um að sjá um sig. Hann hefði mátt þola harðlyndi og misnotkun og byggi á götunni. Drengnum hefur nú verið komið í hendur félagsmálayfirvalda. Verði Natasha fundin sek um refsivert athæfi bíður hennar tveggja til sex ára fangelsisdómur.