Hvergi verða fleiri dauðsföll vegna „selfie“ mynda en í Indlandi
Indverskur unglingspiltur lést eftir að hafa skotið sig í höfuðið með skammbyssu föður síns. Drengurinn var að taka selfie-mynd meðan hann hélt á byssu þegar slysið varð. Drengnum var strax ekið á spítala þar sem reynt var að gera að sárum hans, en hann lét lífið skömmu síðar.
Atvikið átti sér stað í Norður-Indversku borginni Pathankot síðastliðinn föstudag þegar drengurinn stillti sér upp með byssuna sem skráð var á föður hans. Samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldu drengsins skaut hann óvart úr byssunni og öryggislæsingin er sögð ekki hafa verið virk.
Í fyrra urðu flest dauðsföll sem rekja mátti til „selfie“-mynda í Indlandi og búast má við því að það sama verði uppi á teningnum á þessu ári. Fyrr á árinu létust tveir einstaklingar þar sem þeir voru að taka mynd af sér fyrir framan járnbrautarteina. Einnig lést maður sem var á baki fíls, en hann reyndi að taka mynd af sér og fílnum saman.
Samkvæmt yfirvöldum í indversku stórborginni Mumbai er búið að merkja fimmtán svæði í borginni sem sérstök bannsvæði fyrir „selfie“ myndatökur.