Þrír tímar í senn kosta 35 þúsund krónur
Skyndibitakeðjan Burger King opnaði nýlega sánu á einum af veitingastöðum keðjunnar í Finnlandi. Í finnsku sánunni má finna sæti fyrir fimmtán manns.
Á vefsíðu Burger King í Finnlandi segir sánan sé góð til mannamóta og vinnu. Í henni má finna 48 tommu sjónvarp þar sem líklega er hægt að setja upp PowerPoint-kynningar. Enn fremur má finna aðra sánu í næsta herbergi, en þar er má sjá 55 tommu sjónvarp og Playstation 4 leikjatölvu. Að sjálfsögðu er líka að finna sturtur, búningsherbergi og salernisaðstöðu.
Á meðan þú slakar á kemur starfsmaður staðarins með glóðvolgan hamborgara færandi hendi. Venjulega þarf að panta tíma í sánuna, en hægt er að gera það á netinu. Þrír tímar í sánunni kosta 250 evrur, sem eru tæpar 35 þúsund krónur.