Sálfræðiverkefni 22 ára stúlku vindur upp á sig
Fjölmargir leigubílstjórar í Japan fullyrða að þeir hafi tekið farþega í bíla sína sem svo hafi horfið áður en þeir stöðvuðu bifreiðarnar. Þeir segja að á þessu hafi farið að bera eftir jarðskjálftann og flóðbylgjuna sem fylgdi í kjölfarið þann 11. mars árið 2011, en sextán þúsund manns létust í hamförunum.
Fyrst til að greina frá þessum reynslusögum leigubílstjóranna var japanska dagblaðið Asahi Shimbun. Óhætt er að segja að fréttin hafi vakið athygli út fyrir landsteinanna og hafa fjölmiðlar víðsvegar um heiminn gert sér mat úr þessu.
Það var 22 ára stúlka, Yuka Kuda, sem komst að þessu þegar hún lagði spurningalista fyrir hundrað leigubílstjóra sem allir störfuðu í borginni Ishinomaki í Miyagi-héraði á austurströnd Japans, en könnun hennar var hluti af lokaverkefni hennar í sálfræði. Ishinomagi, sem er hafnarborg, varð illa út úr flóðbylgjunni og létust þrjú þúsund íbúar hennar.
Kuda spurði bílstjórana ýmissa spurninga, þar á meðal hvort þeir hefðu orðið varir við eitthvað óvenjulegt í starfi sínu síðan hamfarirnar riðu yfir árið 2011. Flestir svöruðu spurningunni neitandi en sjö bílstjórar sögðu að þeir hefðu tekið drauga upp í bíla sína. Svörin voru ólík en samt sem áður keimlík hvað það það varðaði að þeir hefðu orðið varir við eitthvað yfirnáttúrulegt. Allir sögðust þeir hafa tekið farþega upp í bíla sína sem síðan hefðu horfið áður en á leiðarenda kom.
Einn leigubílstjórinn lýsti því meðal annars hvernig ein kona steig upp í bifreiðina, spurði hvort hún væri dáin áður en hún hvarf. Þetta átti að hafa gerst skömmu eftir að hamfarirnar riðu yfir og sagðist konan vilja fara til Minamihama-héraðs. Bílstjórinn sagði henni sem var að þar væri ekkert að sjá, enda hefði flóðbylgjan lagt allt svæðið í rúst. Að svo búnu hvarf hún sporlaust.