fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Flugræninginn og dularfulla fallhlífin

Dan Cooper rændi flugvél árið 1971 og stökk út með 200 þúsund Bandaríkjadali

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 11. desember 2016 23:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eitt dularfyllsta mál bandarískrar flugsögu er atvik sem varð um borð í flugvél Northwest Orient-flugfélagsins þann 24. nóvember árið 1971. Þann dag rændi maður, sem er enn ófundinn 45 árum síðar, flugvél flugfélagsins og tókst á ótrúlegan hátt að komast undan með 200 þúsund Bandaríkjadali með því að stökkva út úr flugvélinni. DV rifjar hér upp þessa mögnuðu sögu og nýlega opinberun sem gæti varpað ljósi á málið.

„Fröken, þú ættir að líta á miðann“

Þessi dagur byrjaði eins og allir aðrir dagar. Farþegar sem voru á leið í hefðbundið 30 mínútna áætlunarflug milli borganna Portland og Seattle innrituðu sig og var einn þeirra maður að nafni Dan Cooper.

Cooper þessi, sem var með svarta skjalatösku meðferðis, hafði keypt sér miða aðra leiðina frá Portland til Seattle. Að svo búnu gekk hann um borð og settist í sæti 18C þar sem hann kveikti í sígarettu, pantaði sér Bourbon-viskí og sódavatn. Þegar allir voru búnir að fá sér sæti gerðu flugstjórarnir sig reiðubúna til flugtaks. Um það leyti sem vélin var að hefja sig til flugs rétti Cooper flugfreyju, sem sat rétt hjá, miða. Flugfreyjan, Florence Schaffner, taldi að á miðanum væri einfaldlega að finna símanúmer einmana manns og stakk hún miðanum, ólesnum, ofan í tösku. „Fröken, þú ættir að líta á miðann. Ég er með sprengju,“ sagði dularfulli maðurinn, Dan Cooper, við flugfreyjuna. Hún dró miðann upp, renndi yfir hann og sá að maðurinn var ekki að grínast. Í kjölfarið hófst atburðarás sem er lyginni líkust.

Hvað nákvæmlega stóð á miðanum er ekki enn vitað með fullu þar sem Dan tók miðann til baka. Schaffner sagði þó síðar að á honum hefðu komið fram upplýsingar um að sprengju væri að finna í skjalatöskunni. Schaffner settist hjá Cooper og spurði hvort hún mætti líta ofan í töskuna. Cooper varð við beiðninni og opnaði hana nægjanlega mikið til að Schaffner sæi víra og annað tilheyrandi. Í kjölfarið útlistaði Cooper hverjar kröfur hans væru: Hann vildi fá 200 þúsund Bandaríkjadali í peningum (rúmlega eina milljón dala, ríflega 100 milljónir króna á núverandi gengi), tvær fallhlífar og að eldsneytisbíll yrði staðsettur á flugbrautinni í Seattle þegar vélin myndi lenda. Þar vildi hann fá peningana og fallhlífarnar áður en vélin myndi hefja sig aftur til flugs.

Um var að ræða Boeing 727-flugvél Northwest-flugfélagsins og sést hún á meðfylgjandi mynd.
Flugvélin Um var að ræða Boeing 727-flugvél Northwest-flugfélagsins og sést hún á meðfylgjandi mynd.

Ýmsar kröfur

Schaffner fór með þessi skilaboð til flugstjóra vélarinnar, William Scott, sem hafði umsvifalaust samband við flugturninn í Seattle. Öðrum 36 farþegum sem um borð voru var tilkynnt að komunni til Seattle yrði seinkað vegna smávægilegra tæknivandamála. Forstjóri Northwest-flugfélagsins var settur í málið og hann heimilaði að orðið yrði við kröfum Coopers. Hvatti hann um leið starfsmenn flugfélagsins til að vinna með Cooper og verða við öllum hans óskum. Vélin hringsólaði yfir Seattle næstu tvo tímana á meðan bandaríska alríkislögreglan, FBI, skoðaði málið og á meðan unnið var að því að útvega peningana og fallhlífarnar sem Cooper vildi.

Þegar allt var klappað og klárt var Cooper tilkynnt að nú væri allt klárt fyrir lendinguna í Seattle. Klukkan 17.39 að staðartíma var vélinni lent í Seattle. Að svo búnu sagði Cooper flugstjóranum að aka vélinni á afskekktan stað á flugvellinum og slökkva ljósin í flugstjórnarklefanum svo leyniskyttur lögreglu sæju ekki inn í klefann. Tina Mucklow, önnur flugfreyja í áhöfn vélarinnar, tók við peningunum og fallhlífunum og í kjölfarið fengu allir farþegar að fara frá borði. Þar með er ekki öll sagan sögð því Cooper, sem virtist hafa skipulagt ránið í þaula, sagði flugstjóranum hver næstu skref yrðu þegar búið var að fylla vélina af eldsneyti. Scott átti að fljúga vélinni í suðaustur áleiðis að Mexíkóborg á eins litlum hraða og hann kæmist upp með. Hann mátti ekki fara hærra en í 10 þúsund feta hæð og krafðist þess þar að auki að hjólin yrðu niðri alla leiðina. Scott tjáði Cooper að vélin væri þannig úr garði gerð að hún kæmist ekki lengra en þúsund mílur, 1.600 kílómetra, án þess að þurfa að lenda og taka eldsneyti. Þeir skeggræddu þetta í dágóða stund og komust að þeirri niðurstöðu að farsælast væri að lenda vélinni í Reno í Nevada.

Hér er sýnishorn af peningunum sem Brian Ingram fann árið 1980.
Peningarnir Hér er sýnishorn af peningunum sem Brian Ingram fann árið 1980.

Á bak og burt

Vélin hélt af stað klukkan 19.40 að staðartíma og var búin að vera í loftinu í rúmar 20 mínútur þegar viðvörunarljós kviknuðu í flugstjórnarklefanum. Ljósið gaf til kynna að dyr, aftarlega í vélinni, hefðu opnast og skyndilega féll þrýstingurinn. Scott hélt ferð sinni áfram og um klukkan 22 lenti vélin í Nevada. Vopnaðir lögreglumenn frá FBI sátu um vélina og leit leiddi í ljós að Cooper var á bak og burt. Í vélinni fundust tvær fallhlífar af fjórum og því er ljóst að Cooper stökk frá borði með peningana meðferðis. Þó að liðin séu 45 ár frá atvikinu hefur Cooper, eða maðurinn sem sagðist heita Dan Cooper, ekki fundist. FBI rannsakaði málið í þaula; fjöldi fólks var yfirheyrður en allt kom fyrir ekki. Lögreglu tókst ekki að hafa upp á manninum dularfulla sem virtist vita sitthvað um flug, flugrán og samskipti við lögreglu. FBI gekk meira að segja svo langt að endurskapa atburðarásina í þeirri von að það gæti varpað ljósi á hvenær Cooper stökk út og hvar hann lenti á jörðu niðri. Samkvæmt þeim skoðunum stökk Cooper frá borði klukkan 20.13 og lenti á jörðu niðri í grennd við St. Helens-fjall. Umfangsmikil leit á svæðinu, bæði á landi og úr lofti, leiddi hins vegar ekkert í ljós. Þetta var svo endurtekið þegar fór að vora árið 1972 en, eins og áður, fannst ekkert.

Hver var Dan Cooper?

Hver var Dan Cooper?

Mikið hefur verið skrifað og skrafað um flugræningjann dularfulla og sérfræðingar FBI í atferlisfræði teiknuðu upp það sem þeir töldu vera líklega mynd af manninum.

Samkvæmt þeim kenningum þekkti Cooper vel til á Seattle-svæðinu eins og glögglega kom fram í samtölum hans við flugstjóra vélarinnar. Í þeim kom einnig fram að hann þekkti borgina Tacoma úr lofti og vissi að McChord-flugherstöðin var í 20 mínútna akstursfjarlægð frá Seattle-Tacoma flugvellinum. Taldi FBI að Cooper hefði mögulega verið í bandaríska flughernum. FBI taldi að fjárhagsstaða Coopers hefði verið bágborin sem varð til þess að hann var tilbúinn að ganga jafn langt og raun ber vitni. FBI komst einnig að því að nafnið Dan Cooper kom úr belgískri teiknimyndasögu sem fjallar einmitt um kanadískan flughermann, Dan Cooper að nafni, sem lenti í alls konar ævintýrum þar sem fallhlífar komu við sögu.

Umrædd saga var aldrei gefin út á ensku og af því leiðir að Cooper hafði að líkindum einhver tengsl við Evrópu eða Kanada þar sem hægt var að nálgast myndasöguna. Og þar sem Cooper tók skýrt fram að hann vildi bandaríska seðla drógu menn þá ályktun að mögulega væri hann erlendur ríkisborgari, líklega frá Kanada – að öðrum kosti hefði hann ekki tekið þetta fram. Þá drógu menn þá ályktun að Cooper væri mjög skipulagður að eðlisfari og með þekkingu á flugvélum og flugáætlunum. FBI taldi hins vegar að Cooper væri reynslulítill fallhlífarstökkvari þar sem varafallhlífin sem hann tók með sér var kirfilega lokuð og saumuð saman. Reyndir fallhlífarstökkvarar hefðu ekki stokkið án þess að tryggja að allt væri í lagi. Þá taldi FBI ólíklegt að Cooper hefði lifað stökkið af. Hann hafi ekki verið með hjálm eða höfuðhlífar og kuldinn, mínus 57 gráður á Celsíus í loftinu, hafi líklega verið óbærilegur.

Leitin sett í nýtt samhengi

Þetta leiddi til þess að FBI fór að endurskoða þær reikningsaðferðir sem notaðar voru til að áætla líklegan lendingarstað flugræningjans. Flugstjórinn, Scott, sagði síðar að hann hafi flogið vélinni austar en menn upphaflega héldu sem setti leitina í annað samhengi. Flugsérfræðingar reiknuðu líka út að sterkir vindar umrætt kvöld hefðu verið misreiknaðir. Tekið var tillit til nær allra mögulegra og ómögulegra þátta en allt kom fyrir ekki.

FBI brá á það ráð, áður en Cooper fékk peningana afhenta, að skrá niður númerin á seðlunum sem hann fékk auk þess að mynda þá. Árið 1972 fundust nokkrir þessara seðla en átta ár liðu þar til fleiri litu dagsins ljós. Það gerðist í febrúar 1980 þegar átta ára piltur, Brian Ingram að nafni, var á ferðalagi með fjölskyldu sinni skammt frá Vancouver í Kanada, rétt norðan við fylkismörk Washington-ríkis. Þar fann hann við árbakka einn þrjár töskur af illa förnum peningaseðlum. Rannsókn FBI leiddi í ljós að þarna var kominn fram hluti ránsfengsins, nokkur þúsund Bandaríkjadalir. Þetta setti rannsókn málsins í uppnám og bjó í raun til fleiri spurningar en það svaraði. Missti Cooper peningana þegar hann stökk úr vélinni? Ákvað hann að grafa hluta ránsfengsins? Hvers vegna fundust bara þessar þrjár töskur? Rannsókn málsins hélt áfram næstu árin en án þess að einhverjar haldbærar upplýsingar kæmu fram. Enn þann dag í dag eru samtals 9.710 peningaseðlar enn ófundnir.

Það var svo nú í sumar að FBI tilkynnti að stofnunin myndi hætta rannsókn á málinu á þeim forsendum að tíma starfsmanna væri betur varið í aðkallandi verkefni dagsins í dag. Lögregla mun þó áfram taka við upplýsingum um málið, ef einhverjar berast, þá sérstaklega hvað varðar þá peningaseðla sem enn er saknað.
En þó að rannsókn FBI sé formlega lokið eru enn til ævintýramenn sem vilja leysa málið í eitt skipti fyrir öll. Á dögunum birti vefsíða, True Ink, öll skjöl málsins í þeirri von að einhver þarna úti helli sér í málið og kafi ofan í það. „Við birtum öll skjölin og viljum fá hjálp frá almenningi,“ segir Goeffrey Gray, stofnandi veftímaritsins. Það er því aldrei að vita nema gátan leysist þó líkurnar séu ekki ýkja miklar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Vonar að United tapi 5-0 eftir hegðun eins leikmanns – ,,Hann ætti að skammast sín“

Vonar að United tapi 5-0 eftir hegðun eins leikmanns – ,,Hann ætti að skammast sín“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“

Opinberar ástæðuna fyrir banninu: Varð bálreiður – ,,Helvítis svindlari“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fyrrum stjóri Manchester United staðfestir viðræður

Fyrrum stjóri Manchester United staðfestir viðræður
433
Fyrir 17 klukkutímum

Mjólkurbikar karla: Valur burstaði FH – KR lenti undir en vann stóran sigur á Ásvöllum

Mjólkurbikar karla: Valur burstaði FH – KR lenti undir en vann stóran sigur á Ásvöllum
433
Fyrir 18 klukkutímum

Enska úrvalsdeildin: Liverpool fór langt með að stimpla sig út úr titilbaráttunni – United þurfti að hafa fyrir sigrinum

Enska úrvalsdeildin: Liverpool fór langt með að stimpla sig út úr titilbaráttunni – United þurfti að hafa fyrir sigrinum