fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Morð-Sjálfsmorð

Hvað hrjáði hjónaband Guadalupe og Israels er ekki vitað

Kolbeinn Þorsteinsson
Sunnudaginn 13. nóvember 2016 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þótt ekki sé ljóst hvað hrjáði hjónaband Guadalupe Ronquillo-Ovalle og Israels Alvarez virðist ljóst að rætur þess kunna að hafa legið djúpt. Þann 19. september, 2013, átti sér stað uppgjör sem kostaði fimm mannslíf. Guadalupe og Israel bjuggu ásamt þremur sonum sínum í Rice, smábæ 65 kílómetra suðaustur af Dallas í Texas.

Hringt í Neyðarlínuna

Hvað sem því líður þá hefst þessi saga 11. september, 2013, þegar Guadalupe kom í öngum sínum í grunnskóla sona sinna til að hringja í Neyðarlínuna. Sagði hún farir sínar ekki sléttar; hún hafði verið að ræða við systur sína í símanum þegar eiginmaður hennar reif af henni símann með þjósti, fjarlægði rafhlöðuna úr honum og lét síðan hendur skipta.

Beindi að lokum byssunni að sjálfri sér.
Guadalupe Ronquillo-Ovalle Beindi að lokum byssunni að sjálfri sér.

Þennan sama dag var Israel handtekinn og ákærður fyrir heimilisofbeldi. Hann andmælti ekki ákærunni, játaði sig sekan um lítilfjörlegt afbrot, greiddi 367 dali í sekt og eyddi tveimur dögum í grjótinu.

Uppgjörið

Sem fyrr segir átti sér stað blóðugt uppgjör 19. september, rúmri viku eftir handtöku Israels. Daginn þann sendi Guadalupe eiginmann sinn yfir móðuna miklu. Hún lét ekki staðar numið og gerði slíkt hið sama við syni þeirra þrjá, fjögurra, átta og tíu ára. Að því loknu tók hún þá ákvörðun að verða fjölskyldu sinni samferða og skaut sig í höfuðið.

Það varð hlutskipti föður Israels að finna lík fjölskyldunnar, en hann þurfti að nota stiga til að komast upp á svalir á annarri hæð enda hafði enginn svarað þegar hann knúði dyra á heimili fjölskyldunnar.

Elmer Tanner, lögreglustjóri Navarro-sýslu sagði að ekkert á vettvangi benti til þess að Israel hefði brugðið vopni.

„Einangrað tilvik“

Hafði lögreglustjórinn á orði að lítt væri hægt að álykta af fangelsun Israels „annað en að um hefði verið að ræða einangrað tilvik tengt heimilisofbeldi. Við getum aðeins gert ráð fyrir að einhver vandræði hafi verið til staðar á heimilinu.“

Skýrslur sýndu að í kjölfar handtöku Israels rúmri viku fyrr hafði Guadalupe hvorki farið fram á skilnað né sett fram kröfu um nálgunarbann eða aðrar viðlíka ráðstafanir.

Leituðu ráða

Vinkona hjónanna, Maria Franco, renndi stoðum undir orð lögreglustjórans. Að hennar sögn komu Guadalupe og Israel í heimsókn til hennar 16. september og leituðu hjá henni ráða til að bjarga hjónabandinu. Hjónin höfðu á orði að þau glímdu við „venjuleg vandamál“.

Að hennar sögn var ekkert sem benti til þeirrar vár sem síðar varð ljóst að var yfirvofandi: „Ég heyrði ekkert sem benti til hættu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið

Arteta sagður skoða þessa tvo framherja fyrir sumarið
Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Tannlæknir deilir ofureinföldu „tannbjörgunarráði“ fyrir kaffidrykkjufólk

Tannlæknir deilir ofureinföldu „tannbjörgunarráði“ fyrir kaffidrykkjufólk
433
Fyrir 15 klukkutímum

Evrópudeildin: Marseille áfram eftir vítaspyrnukeppni – Svona líta undanúrslitin út

Evrópudeildin: Marseille áfram eftir vítaspyrnukeppni – Svona líta undanúrslitin út
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“