Crystal Brooke Howell hlaut 25 ára dóm fyrir morðið
Tvítug kona, Crystal Brooke Howell, frá Suður-Karólínu hefur játað morð á föður sínum og að hafa falið líkið í geymsluskúr. Morðið átti sér stað í febrúar 2014 þegar Brooke-Howell var 17 ára gömul. Hún læddist að föður sínum með haglabyssu á meðan hann blundaði og skaut hann í höfuðið. Maðurinn lést samstundis. Síðan faldi dóttirin líkið í skúr á landareign feðginanna.
Enginn saknaði mannsins og í kjölfarið byrjaði Brooke-Howell að keyra bílinn hans og eyða þeim peningum sem hún kom höndum yfir. Vinir hennar flutti inn á heimilið og saman héldu þau villt teiti þar sem eiturlyfin flæddu. Þá hafði hún fyrir því að koma fyrir súlu í eldhúsi íbúðarhússins svo hún gæti iðkað súludans.
Eftir mánuð fundust líkamsleifar föður hennar loks þegar gestir þurftu að koma fyrir hlutum í geymslu í skúrnum. Brooke-Howell var handtekinn í kjölfarið.
Dómurinn var kveðinn upp á dögunum og hlaut 25 ára dóm fyrir morðið auk 5 ára dóms fyrir að fela líkið. Verjandi hennar hélt fram að stúlkan glímdi við geðræn vandamál en dómstóllinn hlustaði ekki á þau rök.