Óvenjuleg atburðarás í Disney World í Florída
Fjölskylda ein frá Alabama í Bandaríkjunum hefur ákveðið að höfða mál á hendur Disney World vegna óvenjulegrar atburðarásar sem varð í garðinum í Orlando árið 2014.
Þannig er mál með vexti að fjölskyldan var í garðinum þegar snákur féll úr tré í garðinum og beit ungan dreng. Ömmu drengsins, sem varð vitni að atvikinu, var verulega brugðið og fékk hjartaáfall nokkrum andartökum síðar. Hún lést í kjölfarið.
Fjölskyldan telur að garðurinn beri ábyrgð á dauða ömmunnar sem lést í október árið 2014. Forsvarsmenn Disney hafa hafnað þessum ásökunum og telja að fyrirtækið sé ekki skaðabótaskylt vegna málsins. Þannig hafi um villtan snák verið að ræða og þá hafi fjölskyldan ekki hringt strax eftir sjúkrabíl þegar konan fékk hjartaáfall.
Þess má geta að drengurinn fékk plástur eftir bitið, en snákurinn reyndist ekki vera eitraður.