Efninu var varpað upp á tjald í skólastofunni
Fimmtíu og sex ára kennara hefur verið vikið frá störfum eftir að hann sýndi þrettán ára nemendum í bekk sínum klám fyrir slysni.
Maðurinn sem um ræðir heitir Stephen Lawrie og kenndi hann tölvufræði við Coatbridge-skólann á Englandi. Nemendur voru að leysa verkefni þegar Lawrie ákvað að drepa tímann með því að skoða klám í miðri kennslustund. Hann áttaði sig hins vegar ekki á því að efninu á tölvuskjá hans var varpað upp á tjald í skólastofunni.
Nemendum var verulega brugðið þegar þeir sáu efnið sem kennarinn skoðaði, að því er segir í frétt breska blaðsins Mirror. Nemendur kvörtuðu til skólastjóra og var honum vikið tímabundið frá störfum. Nú hafa skólayfirvöld ákveðið að víkja honum frá störfum fyrir fullt og allt og mun hann því ekki snúa aftur til kennslu í skólanum.