Pizza Hut í Pakistan hefur neyðst til þess að hætta með pítsuhlaðborðið sitt. Ástæðan er sú að viðskiptavinirnir borðuðu of mikið á ramadan-föstunni.
„Staðurinn var alltaf troðfullur á kvöldin. Fyrir mörgum var þetta orðin eiginleg ramadan-hefð, þannig að þessi breyting er svolítið sorgleg,“ hefur breska blaðið Telegraph eftir pakistanska nemandanum Imran Khan, sem er fastakúnni á staðnum.
Á hlaðborðinu máttu viðskiptavinirnir borða eins mikið og þá lysti. Á ramadan fasta menn líkt og kunnugt er frá morgni til sólarlags og eru því skiljanlega svangir á kvöldin. Margir brugðu á það ráð að fara á Pizza Hut og sporðrenndu þar pítsu á eftir pítsu. Það var að bera staðinn ofurliði fjárhagslega og því þurfti að breyta fyrirkomulaginu.
Pizza Hut ákvað í staðinn að koma með tilboð þar sem kúnnarnir fá ótakmarkað magn af Pepsi en aðeins eina pítsu. Hefur þetta farið fyrir brjóstið á allnokkrum viðskiptavinum keðjunnar í Pakistan.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi