Bandarískur námsmaður notaði tímann á meðan hún beið eftir því að einhver kæmi og aðstoðaði hana eftir að hún fótbrotnaði og gerði myndband. Í myndbandinu, sem hefur slegið í gegn á Youtube, lýsir Alexandra De Forest, 21 árs námsmaður frá Wyoming því hvernig hún er illa meidd eftir að hafa brotið á sér ökklann. Vinkona hennar sem var með í för fór að sækja hjálp og til þess að draga athyglina af meiðslunum ákvað Alexandra, eða Lexi eins og hún kallar sig, að taka upp myndband, með húmorinn að vopni.
„Að tala upphátt og segja hugsanir mínar róaði mig,“ segir Lexi í samtali við Fox news. „Ég fann hvernig það var blóð á mér allri; ég var með skurði á hnjám og olnboga og fyrst ætlaði ég bara að skríða niður fjallið,“ segir hún. Hún ákvað því að einbeita sér að því að reyna að vera fyndin til að verða ekki hrædd.
„Þetta er ég að hreyfa fótinn á mér og þetta er ógeðslegt. Ég myndi sýna ykkur meira en ef ég horfi á þetta þá æli ég. Og enginn vill sjá það,“ segir hún meðal annars í myndbandinu sem hægt er að sjá hér fyrir ofan.

Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013