Sundkappar pissa í laugina á Ólympíuleikunum

„Sem sundmaður þá verður maður að sætta sig við að synda í þvagi“

Fyrrverandi afrekskona í sundi, Carly Geehr segir keppendur á Ólympíuleikunum pissa í laugina fyrir og eftir keppni. Geehr keppti fyrir hönd Bandaríkjanna í sundi en hún svaraði því játandi þegar hún var spurð hvort að sundkappar láti vaða í laugina.

„Nærri því allir afreksmenn í sundi hafa pissað í laugina. Sumir neita því en aðrir viðurkenna það fúslega,“ sagði Geehr þegar hún var spurð þessarar spurningar á vefsíðunni Quora.

Hún segir að það sé möguleiki á að létta á sér á meðan bringusundi stendur en í miðri keppni þurfa fáir að sinna kalli náttúrunnar að sögn Geehr.

Hins vegar er algengara að sundkappar láti vaða í laugina fyrir keppni. Er venja fyrir því að þeir hoppi í laugina áður en þeir hefja keppni og er það ágætis tími að sögn Geehr til að pissa í laugina.

Á meðan upphitun og æfingum stendur er það fremur algengt að sundkappar láti vaða í laugina að sögn sundkonunnar . „Sem sundmaður þá verður maður að sætta sig við að synda í þvagi,“ segir Geehr sem rifjar upp atvik þegar æfingarfélagi hennar stillti sér upp við sundlaugarbakkann og varaði félaga sína við því að hún væri að pissa í laugina.

„Það var fremur ógeðfellt, en hún varaði okkur allavega við. Ég er viss um að ég hef synt fyrir aftan fólk sem hefur látið vaða,“ segir Geehr.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.