Segir fljúgandi furðuhlut hafa brotlent í Roswell

„Þetta var enginn fjandans veðurloftbelgur,“ segir fyrrverandi starfsmaður CIA

Fyrir sextíu og fimm árum greindi bandaríska dagblaðið í Roswell Daily Record frá því að fljúgandi furðuhlutur hefði brotlent við búgarð nærri borginni Roswell í Nýju-Mexíkó, í Bandaríkjunum.

Nú hefur fyrrverandi starfsmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA stigið fram og greint frá því að þetta var í raun fljúgandi furðuhlutur, þvert á opinberar útskýringar. „Þetta var enginn fjárans veðurloftbelgur,“ sagði Chase Brandon í samtali við bandaríska fréttavefinn The Huffington Post. Brandon starfaði hjá CIA í 35 ár.

„Þetta var loftfar sem var ekki smíðað af mönnum. Það brotlenti og ég er ekki í vafa um að menn hafi notað orðin „leifar“ og „lík“ þegar tilkynnt var um brotlendinguna.“

Síðustu tíu árin sem hann starfaði fyrir CIA var hann tengiliður fjölmiðla og afþreyingarbransans við leyniþjónustuna. Það var þá sem hann rambaði inn í álmu í höfuðstöðvum CIA í Langley sem hefur að geyma sögulega muni úr starfi stofnunarinnar.

„Þetta var lokað svæði og það höfðu ekki allir aðgang að því. Ég ákvað að skoða mig um einn daginn og sá þar einn kassa sem ritað var á „Roswell“. Ég opnaði kassann og gramsaði í honum. Ég skilaði honum fljótt og sagði: „Guð minn góður, það gerðist í alvöru.“

Það sem varð þess valdandi að hann brást svona við voru myndir og minnismiðar. „Og það er það eina sem ég mun uppljóstra um innihald kassans. Þetta var þó sú sönnun sem ég þurfti til að staðfesta þann grun sem ég hafði um málið.“



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.