Kim Jong-un fær sitt eigið einkennislag

Leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-un hefur líkt og faðir sinn heitinn fengið sitt eigið einkennislag. Lagið hefur fengið mikla spilun í ríkisfjölmiðli Norður-Kóreu og nefnist Onwards to the Final Victory. Í myndbandi lagsins fær áhorfandi að sjá fegurðina sem býr í norður-kóresku landslagi og ógnarkraftinum sem her þjóðarinnar býr yfir.

Faðir Kim Jong-Un, Kim Jong-il, hafði einnig sitt eigið einkennislag en það nefnist There is No Motherland Without You.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.