Ísfirski fréttamiðillinn Bæjarins besta greinir frá einkar furðulegu innbroti á vefsíðu sinni. Innbrotið átti sér stað um liðna helgi þar sem maður gekk inn á heimili ungs fólks á Ísafirði og gæddi sér á kræsingum úr ísskápnum.
Rætt er við húsmóðurina sem greinir frá því að hún og dóttir hennar hefðu verið að heiman um helgina og húsbóndinn á sjó. Þegar hann kom heim hringdi hann í eiginkonu sína og spurði hvort hún hefði verið að borða bræddan ost með kokteilsósu í rúminu þeirra án þess að ganga frá eftir sig.
„Sem ég kannaðist ekkert við. Svo fór að koma ýmislegt skrítið í ljós þar á meðal hálf tóm vínflaska sem skilin hafði verið eftir,“ segir húsmóðirin í samtali við BB.is en hún vildi ekki láta nafn síns getið. Var hjónunum þó brugðið að komast að því að ölvaður maður hafði verið í Gullbráarleik heima hjá þeim, líkt og það er orðað á BB.is.
Innbrotsþjófurinn virtist þó aðeins hafa verið að leita sér að einhverju í svanginn því öll önnur verðmæti voru látin í friði.
„Þetta er því ágætis áminning til fólks að oft getur verið gott að læsa að sér,“ segir í lok fréttarinnar á vef Bæjarins besta.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013