Starfsfólk borgarbókasafns San Francisco hefur nú sett plastlok yfir tölvurnar þar, svokölluð „privacy screens“ eða „einkalok“. Ástæðan fyrir þessu er að fjölmargir kúnnar nota tölvurnar til að skoða klám. Þurfa þeir sem eiga leið fram hjá tölvunum þá ekki að hafa áhyggjur af því að það glitti í óviðeigandi myndefni á skjáunum. Þetta kemur fram í frétt KTVU.
Enn er verið að prufukeyra 18 skjái með einkalokum á bókasafninu. Bókasafnsverðir vona að þetta leysi vandann, svo að þeir muni ekki þurfa að grípa til neyðarúrræða s.s. með því að setja upp netsíur eða með því að hefta tölvuaðgang.
Einn kúnni segir þó að lokin leysi ekki vandann þar sem enn sé hægt að sjá glitta í klæmnar myndir. Samtök gegn klámi, Morality in Media eða Siðgæði í fjölmiðlum vija að bókasöfn innleiði netsíur sem loka fyrir slíkt efni.
„Það virðist vera frekar brenglað, að fólk sé að gera svona dót á almannasvæði,“ segir viðskiptavinur í viðtali við KTVU. „Fólk fer ekki í strætó og les Hustler fyrir framan alla.“

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013