Þjófar stálu getnaðarlim af manni á meðan hann svaf, að sögn lögreglu.
Hinn 41 árs gamli Fei Lin, frá þorpinu Niqiao nærri borginni Wenling í Zhejiang-héraði í Kína, greindi lögreglu frá því að þjófar hefðu brotist inn til hans á meðan hann svaf og sett poka yfir höfuðið á honum, að því er CEN/Europics greinir frá.
„Þeir settu eitthvað yfir höfuðið á mér og girtu niður um mig og svo hlupu þeir í burtu,“ sagði Lin. „Mér var svo brugðið að ég fann ekki fyrir neinu – síðan sá ég að mér blæddi og limurinn var horfinn.“
Lögreglan telur að þjófarnir hafi verið afbrýðisamir sökum þess að Lin hefur haldið við nokkrar lofaðar konur í þorpinu. Lin neitar þó að átt við lofaðar konur.
Sjúkraliðar og lögregla leituðu að þýfinu sem fannst hvergi. Lögreglan hefur enn ekki haft hendur í hári þjófanna en segist leita afbrýðisamra manna.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi