Þessi unga stúlka hefur komið fjölmörgum á óvart en hún er kölluð „litli Mozart“ vegna tónlistarhæfileika hennar.
Lavinia Ramirez er bara tveggja ára og hefur lært á píanó í sex vikur. Hún er bresk og býr í Devon með fjölskyldu sinni. Eftir sex vikna píanó nám steig hún á svið í tónlistarskólanum sínum og spilaði lagið „Mary had a litle lamb“. Það gerði telpan hnörkalaust, aðeins tveggja ára.
Kennarar hennar segja stúlkuna vera besta píanónema í Bretlandi og segja að fáir geti leikið það eftir að spila hnökralaust á hljóðfæri aðeins tveggja ára gamlir. „Að spila aðeins tveggja ára gömul er alveg hreint stórkostlegt og nánast ótrúlegt. Almennt geta svo ung börn ekki haft hemil á sjálfum sér eða hlýtt,“ segir Matej Lehocky kennarinn hennar Lavinu.
Daily Mail greinir frá en þar segir að foreldar Lavinu spili ekki á nein hljóðfæri heldur hafi telpan ákveðið það sjálf að hún vildi læra á píanó. Hún fékk leikfangapíanó í jólagjöf en foreldrar hennar eru nú að leita að alvöru píanói handa stúlkunni. „Hún æfir sig nokkrum sinnum á dag. Við erum að skoða stærra píanó handa henni. Hún heldur áfram að spila en við viljum ekki ýta henni út í þetta,“ segir móðir hennar Jenna, „Hún er miklu klárari en ég.“

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum