Kona sem starfaði áður sem nektardansmær í Sydney fær 3.2 milljónir ástralska dollara af auðæfum ástralsks milljarðamærings nú þegar þau eru skilinn. Kaupmáli sem þau gerðu með sér var staðfestur af dómstól í Ástralíu á dögunum og kröfu mannsins um að hún fengi ekki krónu var hafnað, enda taldi dómarinn sýnt að maðurinn væri að reyna að svíkja konuna um upphæðir sem hún ætti fyllilega skilið.
Þannig var mál með vexti að hjónin fyrrverandi kynntust þegar að konan starfaði sem nektardansmær a skemmtistað, en hún er fjórtán árum yngri en maðurinn. Þau kynntust árið 1998 og gengu í hjónaband árið 2005.
Árið 2007 sótti svo maðurinn um skilnað og sagði svik og pretti vera ástæðu skilnaðarins. Hann segir að konan hafi beitt stórkostlegum hæfileikum sýnum sem nektardansmær til að rugla hann og að hún hafi notað hinar ýmsu kynlífsathafnir til þess að lokka manninn í hjónaband.
Hún hafi misnotað sér það að hann væri tilfinningalega og kynferðislega háður henni og neytt hann til þess að skrifa undir kaupmála þess efnis að kæmi til skilnaðar fengi hún rúmar þrjár milljónir af auðæfum hans, sem nema sautján milljónum ástralska dollara.
Eftir að í hjónasængina var komið segir maðurinn að kynhvöt eiginkonu sinnar hafi hinsvegar kólnað skyndilega og samlíf þeirra breyst til muna. Konan sagði hinsvegar að það væri ekki rétt og að hún hefði sannarlega elskað manninn. Var dómarinn í máli þeirra sannfærður um að konan segði rétt og satt frá og taldi að þar sem fólkið hefði búið saman í sjö ár fyrir hjónaband gæti það einfaldlega ekki staðist að konan væri aðeins á eftir auðæfum mannsins og að það gæti ekki staðist að maðurinn væri enn með glýjuna í augunum sjö árum eftir að þau kynntust. Þá taldi dómurinn einnig sannað að kaupmálinn hefði verið hugmynd eiginmannsins.
Það væri því ósanngjarnt af manninum að reyna að gera lítið úr konunni með starfsferli hennar.
Þess má geta að þetta var annað hjónband mannsins en þegar hann skyldi við fyrri eiginkonu sína þurfti hann að reiða fram 7 milljónir ástralska dollar og var mjög ósáttur en þau hjónin voru aðeins skilin á borði og sæng þegar hann kynntist annarri eiginkonu sinni, nektardansmærinni.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013