Bandaríkjamaðurinn Jonah Falcon vakti grun öryggisvarða á alþjóðaflugvellinum í San Francisco vegna grunsamlegrar bungu í buxunum hans. Bungan stafaði þó ekki af einhverjum smyglvarningi heldur reyndist þetta vera fjölskyldudjásn hins 41 árs gamla Falcon sem er sagt einn stærsti getnaðarlimur í heimi.
Í viðtali við bandaríska fréttavefinn The Huffington Post greinir Falcon frá þessari upplifun þegar öryggisverðir yfirheyrðu hann vegna óþekkta „hlutarins“ í buxunum hans.
„Ég hafði ólað dótið til vinstri, það var ekki í reisn,“ sagði Falcon en getnaðarlimur hans er tæpir 23 sentímetrar að lengd. Í fullri reisn nær hann rúmum 34 sentímetrum.
„Einn varðanna spurði hvort ég væri með eitthvað í vösunum,“ segir Falcon sem svaraði því neitandi. Hann vissi að yfirheyrslan ætti eftir að verða erfiðari eftir að hann var gegnumlýstur. „Annar vörðurinn spurði mig hvort ég væri með einhvern óeðlilegan vöxt,“ segir Falcon hlægjandi við vefinn.
Næst þegar hann ákveður að ferðast með flugvél ætlar hann sér að klæðast hjólabuxum svo það fari ekki á milli mála um hvað sé að ræða.
Falcon varð þekktur eftir að hafa verið umfjöllunarefni í heimildarmynd bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar HBO. Hann hefur fengið fjölda boða frá framleiðendum klámmynda en hefur aldrei þegið þau.

Hemmi Gunn fallinn frá