Í dag var tilkynnt um sigurvegara í ljósmyndakeppni Vísis og WOW Air og má sjá verðlaunamyndina í flokknum „fólk“ hér að ofan.
Ljósmyndaranum Eyþóri Árnasyni brá heldur betur í brún þegar hann sá að ljósmynd sem hann tók fyrir skömmu hafði hreppt fyrstu verðlaun í keppninni. Það þykir Eyþóri sérlega undarlegt í ljósi þess að sjálfur kannast hann ekki við að hafa sent myndina í keppnina.
Á vefsíðu Vísis kemur fram að myndin sé höfundarverk Söndru Mjallar Ólafsdóttur. Þar var myndinni gefið nafnið „Segðu SÍS“ en svo skemmtilega vill til að Eyþór rekur einmitt ljósmyndastofu sem heitir sama nafni. Eyþór starfar sem ljósmyndari DV í hlutastarfi.
„Ég er mjög hissa en mjög stoltur engu að síður,“ segir Eyþór í samtali við samstarfsmann sinn á DV. Málavextir voru þeir að Eyþór hafði selt Söndru myndina og því kom upp misskilningur um málið. Ákveðið var að leysa málið á farsælan hátt með því að bjóða Eyþóri einnig í flug.

Hemmi Gunn fallinn frá