Bandarískur maður var handtekinn í vikunni fyrir að hafa reynt að selja eða losna við tvo bjarnarhúna á bensínstöð í Kaliforníu. Maðurinn geymdi tvo svarta bjarnarhúna af mismunandi kynjum í búrum fyrir utan bensínstöðina.
Maðurinn var handtekinn á miðvikudaginn en starfsmenn bandaríska veiðieftirlitsins hafa tekið húnana að sér.
Í yfirheyrslum sagði maðurinn að móðir húnanna hafi ráðist á hann hjá heimili sínu og að hann hafi skotið birnuna. Þá segist hann hafa tekið húnana að sér. Starfsmaður veiðieftirlitsins sagði um málið í viðtali við FOX fréttastöðina: „Ég hef aldrei séð neitt í líkingu við þetta í Kaliforníu-ríki.“
Verið er að hlúa að húnunum um þessar mundir en þeir verða endurhæfðir á Lake Tahoe-svæðinu fyrir komandi sumar og haust. Í vetur verða þeir merktir og þeim sleppt. Svipað ferli hefur átt sér stað með marga aðra bjarnarhúna sem fundist hafa í ríkinu en talið er að aðeins þrír húnar, sem vitað er um, hafi lifað af þessa tegund endurhæfingar.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013