Pissað í buxurnar af spenningi

Ósmekklegt og subbulegt að margra mati

Nýjasta auglýsingaherferð tískurisans Harvey Nichols, fyrir sumarvörur þeirra, hefur valdið miklum látum ytra þar sem talað er um að þessi herferð sé mjög ósmekkleg og subbuleg.

Á auglýsingamyndunum má sjá konur og karla sem greinilega hafa pissað í buxurnar, svo er stendur skrifað við hliðina „The Harvey Nichols SALE - Try to contain your excitement“ eða „Harvey Nichols útsala - Reyndu að halda aftur af hrifningu þinni“

Talsmaður Harvey Nichols sagði í samtali við DailyMail að þessi auglýsingaherferð hefði átt að vera létt og skemmtileg en alls ekki ætlað að ganga fram af fólki.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.