Mýtan um hina yfirþyrmandi tengdaforeldra er langlíf en hvað gerir maki þegar að tvíburasystur krefjast þess að búa undir sama þaki langt fram eftir aldri? Því mun vera reynt að svara í raunveruleikaþáttum sem heita Tvíburaíhlutun (e.Twintervention) fjalla um náið samband tvíbura.
Í þáttunum er fylgt eftir tvíburum, meðal annars þeim Nicole og Danielle Rego. Þær systurnar ásamt eiginmanni Nicole, Todd, hafa búið saman í þrjú ár. Systurnar munu hafa starfað saman og átt fyrirtæki og því verið afar nánar bæði í leik og starfi.
Þær seldu fyrirtækið fyrir þremur árum og í kjölfarið seldi Danielle íbúðina sína og flutti inn til Nicole á meðan að hún kæmi fótunum aftur undir sig. Þremur árum síðar er Danielle enn að reyna að fóta sig og hjónaband Todd og Nicole mun vera í vandræðum vegna þessa enda návígið við Danielle kannski fullmikið, að minnsta kosti að mati Todd.
Todd kveðst vera ósáttur við þetta fyrirkomulag og vill að þær systur öðlist sjálfstæði. Danielle segir sjálf að þegar að Nicole og Todd hafi gengið í hjónaband hafi henni liðið eins og fótunum væri kippt undan henni. Systurnar segjast hinsvegar ekki geta án hvor annarrar verið.
„Mér finnst ég hafa það mjög gott. Ég get búið með bestu vinkonu minni og systur og eiginmanni mínum. Í alvörunni þá held ég að þetta gæti ekki verið betra,“ segir hún en viðurkennir að hjónabandið sé líklegast í vandræðum vegna þessa fyrirkomulags.
Hægt er að fræða nánar um þetta fyrirkomulag í meðfylgjandi myndbandi.

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi