Yuanming Hu syngur lag Bubba

Einlægur flutningur á laginu Kveðja

Bubbi Morthens skipar sér í hóp einna farsælustu tónlistarmanna á Íslandi. Hann á eldheita og einlæga aðdáendur og hafa margir þeirra reynt að gera ábreiður af lögum Bubba með misgóðum árangri. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá Yuanming Hu syngja eitt frægasta lag Bubba, „Kveðja“.

Ekki verður annað sagt en að Yuanming fari nokkuð vel með lagið og sjálfur hrósar Bubbi söng hansog segir á Facebook síðu sinni : „Þetta er bara nokkuð gott hjá honum.“



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.